Hugtakið jafnrétti er eitt þeirra hugtaka sem hefur verið teygt og skrumskælt á vettvangi kynjastríðsins að því marki að það er nú gjarnan notað til að lýsa einhverju sem því var, í upphafi, alls ekki ætlað að lýsa og hefur engan skyldleika við málfræðilegt inntak sitt. Jafnrétti er enda svo skilgreint í íslenskri orðabók Eddu (þriðju […]
29.12.2011
Slökkt á athugasemdum við Bækur: Feminists say the darndest things
Bækur: Feminists say the darndest things
Bókin Feminists say the darndest things eftir Mike Adams er sennilega ein fyndnasta bók sem gefin hefur verið út til að sýna fram það sem aflaga hefur farið í femínískri hugmyndafræði. Adams er prófessor í afbrotafræði við Háskólann í Wilmington, Norður Karolínu og hefur í starfi sínu ýmsa fjöruna sopið í samskiptum sínum við femínista, þá bæði […]
24.12.2011
Kertasníkir
Þorgerður Einarsdóttir er hér í hlutverki Kertasníkis. Þorgerður er Prófessor í Kynjafræði sem ég kalla reyndar kvennafræði alla jafna vegna augljósrar kvennaslagslíðu innan greinarinnar. Þorgerður skólar ungar stúlkur (og nokkra drengi) í kvennafræði. Segja má að kúrsar hennar séu einskonar klakvél óyndis en frá henni streyma með reglulegu millibili reiðar ungar konur, tilbúnar að takast […]
21.12.2011
Slökkt á athugasemdum við Gluggagægir
Gluggagægir
Katrín Anna Guðmundsdóttir hlýtur þann heiður að koma fram í gervi Gluggagægis sem er jólasveinn bloggsins í dag. Katrín er menntuð í kynjafræðum og markaðsfræðum og var í broddi fylkingar þegar Femínistafélag Íslands sleit barnsskónum. Hún náði fyrir hönd félagsins miklum árangri í markaðssetningu hugmynda forréttindafemínisma og segja má að henni hafi tekist að breyta […]
20.12.2011
Könskriget (Kynjastríð) nú með íslenskum texta!
Fastagestir bloggsins muna sjálfsagt eftir sænsku heimildamyndinni Könskgiget (Kynjastríð) sem ég kynnti í september á þessu ári. Til að myndin nái til sem flestra hef ég nú þýtt hana yfir á íslensku. Áhugasamir geta horft á hana textaða á Youtube rás minni þar sem ég hef sett upp „playlista“ svo hægt sé að spila hana […]
18.12.2011
Askasleikir og Hurðaskellir
Að þessu sinni eru Jólasveinar bloggsins tveir. Þetta eru sómakonurnar þær María Lilja Þrastardóttir og Hildur Lilliendahl í gervi Askasleikis og Hurðaskellis. Sjálfsagt vita flestir sem fylgjast eitthvað með kynjaumræðunni hversvegna þær stöllur eru vel að þessum heiðri komnar. Þær eru það sem kalla má „réttþenkjandi“ og ætíð reiðubúnar að setja ofan í við þá […]
15.12.2011
Þvörusleikir
Næsti Jólasveinn bloggsins er Halla Gunnarsdóttir í gervi Þvörusleikis. Halla er fyrrverandi talskona Femínistafélags Íslands og núverandi aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar Innanríkisráðherra. Jafnrétti er Höllu hugleikið en þó ekki meira en svo að henni virðist ekkert um réttindamál karla og barna gefið og finnst eiginilega bara nóg komið af jafnrétti á því sviði. Í störfum sínum […]
14.12.2011
Reiðir forréttindafemínistar
Ég má til með að benda lesendum á áhugaverða grein á nýjum vef Evu Hauksdóttur, pistillinn.is. Þar ómakar Eva sig við að skýra nokkur þeirra hugtaka sem hafa verið að ryðja sér til rúms í kynjaumræðunni undanfarið og ætlað er að lýsa ýmiskonar öfgum í femínisma. Hugtökin sem hún tekur fyrir eru: Hobbýfemínismi Forréttindafemínismi Fórnarlambafemínismi Femínazismi […]
12.12.2011
Stekkjastaur
Munið þið eftir jólakortum Femínistafélags Íslands? Nú er komin ný og endurbætt útgáfa af nokkrum jólasveinum og munu þeir birtast hér, eftir því sem þeir ramba til byggða fram að Jólum. Meðal nýjunga eru að í ár eru allir jólasveinarnir konur – einmitt eins og einhver jólasveinn Femínistafélagsins óskaði sér. Ég þakka forréttindafemínistum kærlega fyrir […]
7.12.2011
Stígamót kynna hugmyndafræði sína: Sekur – sama hvað!
Ég rakst á ansi merkilegt innlegg á fésbókargrúppu Femínistafélags Íslands í gær. Þar var félagið búið að hanna textaspjald með hugleiðingu um eina grunnforsendu þess réttarkerfis sem við búum við. Textinn var svohljóðandi: „Hugmyndafræðin „saklaus uns sekt sannast“ er ekki fullnægjandi þegar um nauðgunarmál er að ræða. Samkvæmt þeirri grunnhugsun eru sekir nauðgarar á hverju […]



3.1.2012
5 athugasemdir