Af hverju þéna konur minna að meðaltali en karlar að meðaltali? Þetta er spurningin sem Warren Farrell tekur að sér að svara í þessum fyrirlestri sem byggir á rannsóknum hans fyrir bókina Why Men Earn More sem út kom árið 2005. Warren hefur einstakt lag á að koma efni frá sér á einfaldan, líflegan og […]
Sarpur | Blogg RSS feed for this archive
Upptaka af Nicole Ryan að semja við ætlaðan leigumorðingja um að myrða mann hennar
8.2.2013
Slökkt á athugasemdum við Upptaka af Nicole Ryan að semja við ætlaðan leigumorðingja um að myrða mann hennar
Nú hefur lögreglan í Kanada sent frá sér myndbandsupptökur af því þegar Nicole Ryan samdi við mann, sem hún taldi vera leigumorðingja, um að myrða eiginmann hennar, Michael Ryan. Ég skrifaði grein um málið fyrir nokkrum dögum þegar Hæstiréttur Kanada felldi málið niður og hún gekk frjáls ferða sinna og án allra eftirmála. M.ö.o; hún […]
Jafnréttisstofa stuðlar að útbreiðslu neikvæðra staðalímynda um karlmenn
6.2.2013
Ég ætla að halda áfram að röfla yfir því að íslenska kvennahreyfingin skuli hafa staðið fyrir, og hampað komu Germaine Greer hingað til lands árið 2006. Ég veit að þetta eru endurtekningar en það skiptir máli að rekja alla þræði, ætli maður að sýna fram á hræsni og kvenrembu forréttindafemínista með fullnægjandi hætti. Nú er […]
Breski heimildaþátturinn Counterblast með Erin Pizzey
3.2.2013
Slökkt á athugasemdum við Breski heimildaþátturinn Counterblast með Erin Pizzey
Í þessum þætti Counterblast frá 1999, skyggnumst við inn í líf og störf kjarnakonunnar Erin Pizzey. Erin afrekaði það að stofna eitt fyrsta kvennaathvarf í heiminum; Chiswick Women’s Aid í Bretlandi árið 1971 eða um svipað leyti og kvennabyltingin var að brjótast út. Erin féll fljótlega í ónáð femínista. Annarsvegar fyrir það að eiga erfitt með […]
Mike Buchanan talar tæpitungulaust um kynjakvóta og hið ímyndaða glerþak
1.2.2013
Myndskeiðið hér fyrir neðan er úr þætti BBC, Daily Politics frá 28. Janúar sl. Þar tekur Mike Buchanan þátt í rökræðu um kynjakvóta við Heather Rabbatts undir stjórn Jo Coburn. Ef karlmenn (og konur með sjálfsvirðingu) myndu nú upp til hópa svara forréttindafemínistum jafn hraustlega og Mike gerir í þessu myndbandi, þá væri öldin önnur. Þetta […]
Konu sem réð leigumorðingja til að myrða eiginmann sinn ekki gerð refsing
28.1.2013
Draumur forréttindafemínista um sértækar kynbundnar undanþágur frá íþyngjandi réttarreglum til handa konum er langt í frá fjarlægur. Það er þekkt staðreynd að konur sem fremja glæpi eru síður líklegar til að sæta ákæru af hálfu hins opinbera heldur en karlar sem fremja sambærilega glæpi. Á grundvelli kynferðis hljóta konur, sem á annað borð sæta ákæru, […]
Fyrirlestur: Dr. Christina Hoff Sommers: Sex, lies and Feminism
26.1.2013
Meinsemdir kynjafræðinnar er meginumfjöllunarefni Dr. Christinu Hoff Sommers í þessum fyrirlestri sem hún titlar; Sex, lies and feminism. Fyrirlesturinn var haldinn við lagadeild Toledo Háskóla þann 14. mars 2012. Því miður heyrast spurningar úr sal illa í lok fyrirlestursins en meginefnið stendur þó alveg fyrir sínu. Sommers ætti að vera fastagestum kunn en tvær bóka hennar […]
Háskólinn á Bifröst; vettvangur karlfyrirlitningar
22.1.2013
Ég skrifaði fyrir skemmstu um komu karlahatarans Germaine Greer hingað til lands. Það er óþarfi að endurtaka allt sem ég hef sagt um Greer að öðru leyti en því að mér finnst það ákveðið sjúkdómseinkenni á íslensku kvennahreyfingunni að hún skuli velja að bjóða hingað til lands jafn ruglaðri og hatursfullri manneskju og Greer er. […]
Karlahatarinn Germaine Greer heimsækir Ísland
17.12.2012
Germaine Greer er íslenskum femínistum að góðu kunn. Á íslenska hluta Wikipediu segir að Germaine Greer sé, ásamt því að vera rithöfundur og róttæklingur, einn af kenningarsmiðum femínismans á síðari hluta 20. aldar. Þá var fyrsta bók hennar lesin í leshringjum bæði Kvenréttindafélags Íslands og Rauðsokkuhreyfingarinnar þegar hreyfing femínista var að slíta hér barnsskónum. Greer hefur […]
Knúz?
9.12.2012
Eftirfarandi eru hin fallegu einkunnarorð femíníska vefritsins knuz.is: „Alnetið þarf knúz miklu oftar. Annars breytist það í vígvöll“. Ekki amalegt þetta. Þann 5. des. sl. birti knúz.is greinina „Þú hefur rangt fyrir þér“ eftir Ingólf Gíslason. Greinin innihélt tvær myndir. Þessa: Og þessa hérna: Ég fékk þessar myndir sendar sem ábendingu fyrir vefinn konur sem hata karla. Rétt […]



9.2.2013
4 athugasemdir