Sarpur | Blogg RSS feed for this archive

Kynferðisbrotamaður fær miskabætur

10.4.2011

Slökkt á athugasemdum við Kynferðisbrotamaður fær miskabætur

Sjáðu fyrir þér eftirfarandi atburðarrás: Starfsmaður (A) á íslenskum spítala áreitir samstarfsmann (B) kynferðislega eftir vinnustaðargleðskap. Starfsmaður B kvartar við yfirmann og kveðst ekki geta unnið með starfsmanni A á sömu deild áfram eins og þau höfðu gert fram að meintu broti svo vinnuveitandi færir A yfir á aðra deild. Starfsmaður A, (gerandinn), telur þá afgreiðslu […]

Continue reading...

Millidómstig kvenna

3.4.2011

Slökkt á athugasemdum við Millidómstig kvenna

Forréttindafemínistar hafa um árabil rekið áróður fyrir því að hér á landi þurfi að koma á tvöföldu réttarkerfi. Einu fyrir karlmenn og öðru fyrir konur. Fyrirbæri eins og sönnunarbyrði, sem hingað til hafa þótt órjúfanlegur hluti réttarkerfisins, er ekki talið til bóta fyrir konur og ætti helst að afnema með öllu í hinu nýja réttarkerfi […]

Continue reading...

Áhrif kreppunnar á velferð kvenna

30.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Áhrif kreppunnar á velferð kvenna

Þetta er yfirskrift úttektar Eyglóar Árnadóttur og Evu Bjarnadóttur sem þær unnu fyrir Velferðarvakt Verlferðarráðuneytisins og kynnt var á fundi hennar þann 1. febrúar sl. Það þarf ekki að velta vöngum lengi yfir hvert sé markmið skýrslu sem ber titilinn Áhrif kreppunnar á velferð kvenna. Hér á að sýna fram á bága stöðu kvenna – sama hvað. […]

Continue reading...

Kynbundinn dauðamunur mestur á Íslandi

28.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Kynbundinn dauðamunur mestur á Íslandi

Ef karlmenn háðu réttindabaráttu á sama hátt og forréttindafemínistar, hefði þetta getað verið fyrirsögn fréttar á mbl.is þar sem fjallað var um tíðni banvænna vinnuslysa á Norðurlöndunum: „Alls var tilkynnt um 1243 banaslys við vinnu á Norðurlöndunum á árunum 2003 til 2008. Þetta svarar til 1,51 til 2,49 banaslysa á hverja 100.000 starfandi á ári hverju, mismunandi […]

Continue reading...

Hallar á konur í atvinnumálum?

25.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Hallar á konur í atvinnumálum?

Í fréttum Ríkissjónvarpsins þann 16. mars sl. er rætt við Þorgerði Einarsdóttur, prófessor í kynjafræði sem segir verulega halla á konur í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Miklu fjármagni sé varið til atvinnuuppbyggingar á störfum sem sögð eru karlastörf en konur séu í meirihlusta þeirra sem hverfa frá störfum hjá ríkinu. Þá er bent á að fækkað hafi um 470 konur […]

Continue reading...

Forsætisráðherra brýtur jafnréttislög

24.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Forsætisráðherra brýtur jafnréttislög

Ég ætla að taka upp hanskann fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur. Úrskurðarnefnd Jafnréttismála úrskurðar að ráðning ráðuneytis hennar á skrifstofustjóra hafi verið á svig við lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Arnar Þór Másson var metinn hæfari en Anna Kristín Ólafsdóttir af þeim sem stóðu að ráðningunni fyrir ráðuneytið. Þessu var Anna ósammála […]

Continue reading...

Kynleg kynjuð fjárlagagerð?

21.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Kynleg kynjuð fjárlagagerð?

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu og á vísi.is gagnrýnir Þórveig Þormóðsdóttir, formaður Jafnréttisnefndar BSRB, atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar og leggur þá sérstaklega út frá fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar varðandi kynjaða fjárlagagerð. Það er augljóst að Þórveig er ekki sátt við stöðu kvenna sem hún virðist hafa haldið að ætti að verða svo mikið betri miðað við karla með tilkomu kynjaðrar […]

Continue reading...

Lánatryggingasjóður kvenna endurvakinn

19.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Lánatryggingasjóður kvenna endurvakinn

8. Mars sl. var góður dagur fyrir konur. Svo góður að ástæða er til að óska konum til hamingju með það … að vera konur. Þennan dag var Lánatryggingasjóður Kvenna endurvakinn með samkomulagi milli Velferðarráðherra, Guðbjarti Hannessyni, Katrínu Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra og Jóni Gnarr, borgarstjóra. Stofnfé sjóðsins er 70 milljónir króna og er ætlað að veita […]

Continue reading...

Konur hvergi óhultar

16.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Konur hvergi óhultar

Fyrir margt löngu lærðist mér að það allra hræðislegasta sem hent getur nokkra sál á þessu tilverustigi er að fæðast sem kona af tegundinni homo sapiens. Konur koma ver út úr kreppum, hafa lægri laun en karlar, fá ekki aðstoð yfirvalda þegar karlkyns samstarfsmenn hreita í þær fúkyrðum og til að kóróna herlegheitin þurfa þær svo að lifa […]

Continue reading...

Guðríður Haraldsdóttir og öskubuskan

13.3.2011

Slökkt á athugasemdum við Guðríður Haraldsdóttir og öskubuskan

Það virðist hafa skapast hefð fyrir því að konur hafi uppi alvarlegar ásakanir í garð manna sem þær eiga í forsjárdeilu við. Þetta þarf út af fyrir sig ekki að koma á óvart. Þegar fólk deilir þá er það sjaldnast að sýna sínar bestu hliðar og ekki sakar að okkur hefur öllum verið kennt að […]

Continue reading...