Hatur forréttindafemínista á karlmönnum birtist okkur í ýmsum myndum. Svosem baráttu þeirra gegn mannréttindum karla eins og þau eru skilgreind í Mannréttindasáttmála Evrópu og Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Ég er löngu hættur að kippa mér upp við það þegar karlahatur og karlfyrirlitning brýst fram í málflutningi forréttindafemínista en hitt þykir mér alltaf jafn umhugsunarvert, það hvernig […]
Sarpur | Blogg RSS feed for this archive
Kynjuð hagstjórn og opinberir starfsmenn
17.2.2012
Slökkt á athugasemdum við Kynjuð hagstjórn og opinberir starfsmenn
Ólafur Þ. Stephensen skrifar leiðara í Fréttablaðið í gær undir yfirskriftinni Meiri fækkun ríkisstarfsmanna. Þar gerir hann að umtalsefni, skilaboð Seðlabanka Íslands til stjórnvalda í nýjasta hefti Peningamála. Þar gerir bankinn að umtalsefni aukinn halla á fjárlögum þessa árs miðað við upprunalegt frumvarp sem lá til grundvallar hagspá bankans frá því í nóvember sl. Um […]
Jákvæð mismunun
12.2.2012
„Það er jákvæð mismunun þegar einstaklingur af því kyni sem hallar á er ráðinn í starf, að uppfylltum lágmarksskilyrðum, jafnvel þótt hæfari einstaklingur af hinu kyninu sé meðal umsækjenda.“ Þorgerður Einarsdóttir, Prófessor í kynjafræði í Morgunblaðinu, 27. ágúst 2004
Helvítis foreldrajafnréttið
8.2.2012
Foreldrajafnrétti hefur löngum verið forréttindafemínistum erfiður ljár í þúfu. Þeir sem berjast fyrir foreldrajafnrétti berjast fyrir afnámi lögbundins misréttis, ólíkt femínistum sem hafa ekkert lögbundið misrétti til að berjast gegn lengur. Það að vera á móti foreldrajafnrétti setur fólk sem gefur sig út fyrir að vera jafnréttissinnað, í svolítið klaufalega stöðu. Margir virðast halda að […]
Menning karlfyrirlitningar
4.2.2012
Karlfyrirlitning er fyrirbæri sem getur reynst erfitt að henda reiður á í samfélaginu enda sýnist sitt hverjum. Rétt eins og í tilviki kvenfyrirlitningar þá er mat á því hvað fellur undir karlfyrirlitningu að miklu leyti einstaklingsbundið. Þá er ekki óalgengt að fólk missi sig í túlkunargleðinni og sjá karl- eða kvenfyrirlitningu í hverju horni svo […]
Kæra Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
29.1.2012
Ég hlustaði á viðtal við þig í þættinum Sirrý á sunnudagsmorgnum frá því fyrir viku síðan þar sem Sirrý ræddi við þig um kynjafræðikennslu sem þú stendur fyrir í Borgarholtsskóla ásamt því að ræða jafnrétti og jafnréttismál almennt. Ég verð að segja að sá kafli viðtalsins sem snerti á öfgum í baráttu femínista olli mér […]
Kynungabók: Þunglyndi er algengara hjá konum
24.1.2012
Slökkt á athugasemdum við Kynungabók: Þunglyndi er algengara hjá konum
Það er orðið nokkuð síðan ég birti færslu um Kynungabók. Því fer þó fjarri að gagnrýni minni á bókina sé lokið. Það er af of miklu að taka til að svo sé. Mér finnst að hugmyndir aðstandenda Kynungabókar eigi að vera vel kynntar og öllum aðgengilegar svo lengi sem hugmyndafræði þeirra er álitin tæk til […]
Gervikonur og puntkonur
21.1.2012
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar áhugaverðan pistil í Morgunblaðið undir yfirskriftinni „Ekki rétt gerð af konu“. Þar fjallar Kolbrún um þá fyrirlitningu sem femínistar sýndu Margaret Thatcher en fyrir þau ykkar sem ekki vita þá var Thatcher á önverðu við flesta ef ekki alla öfgafulla femínista í hinu pólitíska litrófi. Grípum hér aðeins niður í pistil Kolbrúnar: „Ég man eftir […]
Old girls network
18.1.2012
Femínistar hafa löngum talað um stund vitrunar (e. click moment) til að lýsa því þegar þeir sjá skyndilega einhverja misfellu í samskiptum kynjanna sem þeim hafði áður verið dulin. Ég er ekki frá því að ég hafi upplifað einmitt þetta þegar ég las Greiningu á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá kynjafræðilegu sjónarhorni. Skýrslan var tekin saman af […]
Undarlegt að ekki fleiri konur hati karla
15.1.2012
„Ibland är jag förundrad att inte fler kvinnor verkligen hatar män“ (Á Íslensku: Ég er stundum undrandi á að ekki fleiri konur hati karla). Margareta Winberg, Ráðherra Jafnréttismála í Svíþjóð (1998 – 2003) í aðsendri grein í Roks Tidning, árið 2005. Sjá nánar í heimildamyndinni Kynjastríð.



24.2.2012
14 athugasemdir