Sarpur | Blogg RSS feed for this archive

Ræða: Lilja Rafney Magnúsdóttir leggur til kvennaþing

2.7.2015

Slökkt á athugasemdum við Ræða: Lilja Rafney Magnúsdóttir leggur til kvennaþing

Ræða Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um vælandi karlmenn, vaskar konur og kvennaþing. Um ræðuna, sem Lilja hélt þann 21. júní sl., hef ég áður fjallað um hér. – SJ | Taktu þátt | Óskast | Rannsókna- & heimildasafn |

Continue reading...

Kvennaþing

1.7.2015

2 athugasemdir

Lagasetning sem afnemur kjörgengi karla á grundvelli kyns með það fyrir augum að hér á landi verði Alþingi einungis skipað konum. Þetta er hugmynd Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Hugmyndina viðraði hún úr ræðustól Alþingis þann 2. júní sl. Á sjálfu 100 ára afmælisári kosninga- og kjörgengisréttar kvenna. Ragnheiður leggur til að lög geri kvennaþingið bindandi […]

Continue reading...

Fyrirlestur: Dr. Murray Straus: 30 Years of Research on Partner Violence: Denial and Distortions of the Evidence and What to do about it

18.4.2015

Slökkt á athugasemdum við Fyrirlestur: Dr. Murray Straus: 30 Years of Research on Partner Violence: Denial and Distortions of the Evidence and What to do about it

Dr. Murray Straus hefur í áratugi verið álitinn einn fremsti sérfræðingur á sviði rannsókna á heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum (e. parntner violence). Hann á t.d. heiðurinn af útgáfu fyrstu rannsóknar í bókaformi á heimilisofbeldi í bandarískum fjölskyldum. Þá þróaði hann módel til að greina ofbeldishegðun, The Conflict Tactic Scale, módel sem enn í dag er eitt mest notaða verkfæri til að […]

Continue reading...

Niðurstaða meints kynferðisbrotamáls á Ísafirði

12.4.2015

Ein athugasemd

Þann 14. desember 2013 sögðu allir helstu fréttamiðlar frá meintu kynferðsbroti sem átti að hafa átt sér stað þá um morguninn. Fyrsta opinbera tilkynning lögreglunnar v. málsins var gefin út um hádegisbilið þennan sama dag og er svohljóðandi: ,,Kl.04:20 í morgun var lögreglu tilkynnt um að kynferðisbrot hafi átt sér stað í húsi einu á […]

Continue reading...

Brestir: Kvenkyns gerendur kynferðisofbeldis

11.4.2015

4 athugasemdir

Mig langar að taka ofan fyrir aðstandendum fréttaskýringaþáttarins Bresta á Stöð 2. Fyrsti þáttur annarara þáttaraðar var sýndur þann 23. mars sl. Umfjöllunarefni þáttarins: ,,Kvenkyns gerendur kynferðisofbeldis“, hvorki meira né minna. Það hefði verið hægt að klúðra þessari umfjöllun á svo ótal marga vegu og það hefði verið svo dæmigert fyrir tíðarandann í dag. Ein […]

Continue reading...

Jackie

7.4.2015

3 athugasemdir

Ein skýrasta birtingarmynd þeirrar brjálsemi sem einkennir forréttindafemínista er, að mínu mati, sú krafa að undantekningalaust eigi að trúa konum sem bera upp á menn sakir um kynferðislegt ofbeldi. Að hafa þessa hugmynd og vilja í alvöru aftengja almenn mannréttindi í þágu þessarar trúar er auðvitað ekkert annað en bilun og það sjá allir sem ekki eru […]

Continue reading...

Fyrirlestur: Dr. Donald Dutton: Er heimilisofbeldi kynbundið vandamál?

4.4.2015

Slökkt á athugasemdum við Fyrirlestur: Dr. Donald Dutton: Er heimilisofbeldi kynbundið vandamál?

Þegar þú heyrir hugtakið heimilisofbeldi er langlíklegast að þú sjáir fyrir þér friðsama og saklausa konu verða fyrir alvarlegu ofbeldi af hálfu karlmanns. Þ.e. að því gefnu að þú hafir augu, eyru og hafir búið á Íslandi einhvern hluta síðustu þriggja áratuga. En hefur þú einhverntíman staldrað við og velt fyrir þér ástæðum þessa hugrenningatengsla? Hversu algeng ætli […]

Continue reading...

Frelsun gerivörtunnar úr greipum feðraveldisins

27.3.2015

Slökkt á athugasemdum við Frelsun gerivörtunnar úr greipum feðraveldisins

Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Sem betur fer. Í gær lærði ég t.d. að geirvörtur kvenna væru eitthvað sem þyrfti að frelsa og að konur á ýmsum aldri hefðu, þar til í gær, upplifað sig heftar, ófrjálsar og beittar órétti fyrir að mega ekki spranga um stræti og torg berbrjósta. Nokkuð sem karlmenn gera […]

Continue reading...

Bergljót og dýrið

12.3.2015

17 athugasemdir

Með tiltölulega stuttu millibili lætur íslenskt fjölmiðlafólk misnota sig af ofbeldiskonum sem spila sig sem fórnarlömb þeirra sem þær eru að níðast á. Ég er hér að tala um viðtöl við konur sem eru að ,,opna umræðuna“ nú eða ,,sig“ um það ægilega ofbeldi sem þær og börn þeirra máttu þola á meðan þær voru […]

Continue reading...

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir um tíðni kynerðisofbeldis/áreitni

13.3.2014

3 athugasemdir

Femínistar hafa í gegnum tíðina beitt allskonar skapandi aðferðum til að fá út sem hæstar tölur um tíðni kynferðisbrota gegn konum. Femínistinn Mary Koss, og rannsókn hennar frá árinu 1985, er líklega ein þekktasta heimild um þetta harmaklæmelsi. Í þeirri rannsókn tók hún viðtöl við yfir þrjú þúsund háskólastúdínur um reynslu þeirra af kynlífi og […]

Continue reading...