Sarpur | Blogg RSS feed for this archive

Amma þín var húsdýr og afi þinn þrælahaldari

20.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Amma þín var húsdýr og afi þinn þrælahaldari

„í öllum stéttskiptum þjóðfélögum sögunnar hefur fjölskyldan gegnt sama hlutverki í meginatriðum. Hún ber ábyrgð á umönnun og framfærslu þeirra einstaklinga sem innan vébanda hennar eru. Innan hennar hefur konan verið húsdýr og heimilisþræll“ Forvitin rauð, blað Rauðsokka 6. árg., 1. tbl., 1. mai 1978 bls. 13

Continue reading...

Kynungabók í höndum kvenna

18.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Kynungabók í höndum kvenna

Eins og fram kom í færslu um Kynungabók í gær stendur til að skoða þessa ritsmíð forréttindafemínista með kynjagleraugum og birta niðurstöður þeirrar skoðunar hér á næstu misserum. Við skulum byrja á að skoða það sem fyrst stingur í stúf við þetta rit, sjálfa ritstjórn bókarinnar. Fyrir þau ykkar sem ekki vita er Kynungabók gefin út af […]

Continue reading...

Kynungabók

17.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Kynungabók

Eins og allar rétttrúnaðarkirkjur sem vilja láta taka sig alvarlega hafa forréttindafemínistar lengi horft til þess að koma boðskap sínum áleiðis til barna á mótunaraldri. Þónokkur árangur hefur þegar náðst á erlendri grund hvað þetta varðar og er nú svo komið að hugmyndafræði forréttindafemínista er orðin samofin kennsluefni og námskrám grunn- og framhaldsskóla t.d. í Bandaríkjunum og nokkrum nágrannalöndum […]

Continue reading...

Þegar guð skapaði manninn var hún aðeins að grínast

14.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Þegar guð skapaði manninn var hún aðeins að grínast

Þetta er yfirskrift fyrirlesturs sem haldinn var í Jónshúsi, Kaupmannahöfn í tilefni Alþjóðlegs baráttudags kvenna þann 8. mars sl. Í fyrirlestrinum fór Erla Sigurðardóttir blaðamaður og þýðandi yfir starf íslensku kvennahópanna í Kaupmannahöfn á árunum 1979-1982 er mörkuðu nýja tíma í kvennabaráttu. Þó mér finnist vissulega sérkennilegt að femínistar kjósi halda upp á daginnn sinn með því að ala […]

Continue reading...

Þumalputtareglan

12.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Þumalputtareglan

Flökkusagan um tilurð þumalputtareglunnar er nokkuð sem forréttindafemínistar um allan heim hafa lengi notað til að ala á karlfyrirlitningu. Þetta gera þær með því að segja okkur að uppruna hugtaksins megi rekja til breskra laga sem heimilaði karli að berja konu sína með priki svo fremi að það væri ekki þykkara en þumall hans. Katrín Anna Guðmundsdóttir […]

Continue reading...

Jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands

10.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands

Fyrir þau ykkar sem hyggið á nám við Háskóla Íslands og kvíðið því að þurfa að takast á við kaldranalegt skólalífið í kynjuðu tilliti þá er hér komin lausn fyrir ykkur: Við Háskóla Íslands starfar Jafnréttisfulltrúi! Hann er með aðsetur á 3. hæð á Háskólatorgi og auglýsir viðtalstíma á miðvikudögum milli kl. 10 – 11 og eftir samkomulagi á […]

Continue reading...

Ríkisstofnun um réttar karlmennskuhugmyndir

9.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Ríkisstofnun um réttar karlmennskuhugmyndir

Eitt af megineinkennum forréttindafemínisma er það hugmyndafræðilega yfirlæti sem stefnan og fylgjendur hennar einkennast af. Ein birtingarmynd þess er sú að forréttindafemínistar álíta sig hafa ósnertanlegt umboð til að ákveða, fyrir bæði karla og konur, hvaða skoðanir megi hafa og hverjar ekki. Þá finnst forréttindafemínistum sjálfsagt að skattfé almennings sé í stórum stíl varið í að innræta þessum sama […]

Continue reading...

Svar Fjármálaráðuneytis v. Verkefnisstjórnar um kynjaða fjárlagagerð

5.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Svar Fjármálaráðuneytis v. Verkefnisstjórnar um kynjaða fjárlagagerð

Ég gerði því góð skil hér nýlega að hjá Fjármálaráðuneytinu hefði verið skipuð Verkefnisstjórn um kynjaða fjárlagagerð sem nær eingöngu konur sitja í. Um það má lesa hér og hér. Þar sem Fjármálaráðherra vor er yfirlýstur femínisti og nokkrir þeirra forréttindafemínista sem í verkefnisstjórninni sitja hafa opinberlega tjáð sig um gæði og gagnsemi kynjakvóta ákvað […]

Continue reading...

Vissir þú? #1

1.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Vissir þú? #1

Continue reading...

Vissir þú?

1.5.2011

Slökkt á athugasemdum við Vissir þú?

Í dag hefst hér vakningarátakið Vissir þú?. Þá munu tiltölulega reglulega birtast hér stuttar hugvekjur um jafnréttismál og vondan málstað forréttindafemínista.  Hugvekjurnar verða stuttar, hnitmiðaðar settar fram á myndformi sem er auðvelt að deila t.d. á facebook eða annarsstaðar. Hugvekjurnar munu allar byggja á efni sem áður hefur verið fjallað um á þessari síðu. Þeir sem […]

Continue reading...