20.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Blóðdemantar

Blóðdemantar

Ég var að horfa á myndina Blood Diamond. Myndinni er ætlað að vekja áhorfendur til umhugsunar um félagslegar afleiðingar verslunar með svokallaða blóðdemanta – þ.e. demanta sem koma frá stríðshrjáðum svæðum og fjármagna beint eða óbeint átök á svæðinu. Myndin var, eins og gengur, full af ofbeldi og vondum karlmönnum að drepa fólk í því upplausnarástandi sem ríkti í Sierra Leone […]

Continue reading...

17.1.2010

Slökkt á athugasemdum við „Equal is not enough“

„Equal is not enough“

Þetta er heitið á ráðstefnu sem auglýst er á póstlista Femínistafélags Íslands þann 13. jan sl. Á íslensku gæti þetta útlaggst sem „jafnt er ekki nóg“. Þetta segir meira en þúsund orð um þá eðlisbreytingu sem orðið hefur á femínisma úr jafnréttisfemínisma í forréttindafemínisma. Eða hvað á maður annars að halda þegar jafnt er ekki nóg? SJ

Continue reading...

15.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Kvennahækjur

Kvennahækjur

Þegar búið er að halda að þjóðarsálinni hygmyndinni um veiku, getulitlu (og pínulítið vitlausu konuna) jafn lengi og forréttindafemínismi hefur gert verður fáránleiki ýmissa fyrirbrigða í samfélaginu mörgum ósýnilegur. Þetta á t.d. við um atvinnuþróunarstyrki kvenna: Þrátt fyrir gildandi jafnréttislög banni mismunun á grundvelli kynferðis og segi orðrétt í 24. gr: „Hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, hvort […]

Continue reading...

13.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Aðstoðarkona Dómsmálaráðherra um barnalaganefnd

Aðstoðarkona Dómsmálaráðherra um barnalaganefnd

Útvarpsþátturinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni tók smá sprett á sama málefni og skrifað var um hér í gær, þ.e. barnalaganefndina sem eingöngu er skipuð konum. Í þættinum var tekið símaviðtal við aðstoðarkonu Dómsmálaráðherra, Ásu Ólafsdóttur. Það var þrennt sem ég tók út úr þessu samtali. Í fyrsta lagi var það gamalkunn tugga um að misrétti gagnvart konum í fortíð […]

Continue reading...

12.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Barnalög í höndum kvenna

Barnalög í höndum kvenna

Mbl.is sagði í dag frá frumvarpi til nýrra barnalaga sem er að detta af færibandinu um þessar mundir. Ég hef ekki lesið frumvarpið og ætla ekki að gera því efnislega skil í þessari færslu. Í frétt mbl.is segir m.a: „Nefnd sem skipuð var í desember 2008 til að fara yfir reglur barnalaga um forsjá barna, […]

Continue reading...

12.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Byggðastofnun auglýsir kvennastyrki

Byggðastofnun auglýsir kvennastyrki

Byggðastofnun auglýsir um þessar mundir styrki fyrir konur til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun. Þátttökurétt hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði Byggðastofnunar. Ekki veit ég hversvegna Byggðastofnun er að útdeila styrkjum sem mismuna körlum og enn síður veit ég hvernig stofnunin sér þetta samræmast 24. gr. jafnréttislaga sem bannar […]

Continue reading...

10.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Femínískt heimilislíf

Femínískt heimilislíf

„Patriarchy requires violence or the subliminal threat of violence in order to maintain itself … the most dangerous situation for a woman is not an unknown man in the street, or even an enemy in wartime, but a husband or lover in the isolation of their own home“ Gloria Steinem, forréttindafemínisti og blaðakona.

Continue reading...

9.1.2010

Slökkt á athugasemdum við „Ótrúlega karlkyns“

„Ótrúlega karlkyns“

Það fjölgar í hópi þeirra kvenna sem leyfa sér að segja að Hrunið hafi verið körlum að kenna og konur hafi bara staðið hlutlausar hjá og furðað sig á þessum strákabjánum – sligaðar af kvenlegri áhættumeðvitund. Þannig birtir dv.is þann 4. jan. sl. frétt sem ber titilinn „Karladrifin og strákaleg útrás“. Þar segir af fræknum árangri Sigrúnar Davíðsdóttur, fréttaritara […]

Continue reading...

7.1.2010

Slökkt á athugasemdum við „Konur eru veikari en karlar“

„Konur eru veikari en karlar“

Svona hljóðar fyrirsögn greinar á Doctor.is sem ég rakst nýlega á í tengslum við gagnaöflun um fjölda kvenna og karla sem leita sér áfengis- og vímuefnameðferðar. Eins og allir vita er forréttindafemínistum mikið í mun að litið sé á konur sem einhverskonar kjánaprik sem ferst afar fátt vel úr hendi. Það er akkúrat það andrúmsloft sem ég […]

Continue reading...

2.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Völd

Völd

Ein af furðum veraldar er forréttindafemínismi … og ein af furðum forréttindafemínisma er skilgreining hreyfingarinnar á valdi – sem er raunar hornsteinn femínínskrar hugmyndafræði. Tilvist forréttindafemínísma á allt sitt undir því að vald sé skilgreint frá sjónarhóli kvenna svo og því að allt vald liggji hjá körlum en ekkert hjá konum. Í framhaldi af því […]

Continue reading...