Sarpur | Blogg RSS feed for this archive

Byggðastofnun auglýsir kvennastyrki

12.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Byggðastofnun auglýsir kvennastyrki

Byggðastofnun auglýsir um þessar mundir styrki fyrir konur til markaðssetningar erlendis á handverki og hönnun. Þátttökurétt hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði Byggðastofnunar. Ekki veit ég hversvegna Byggðastofnun er að útdeila styrkjum sem mismuna körlum og enn síður veit ég hvernig stofnunin sér þetta samræmast 24. gr. jafnréttislaga sem bannar […]

Continue reading...

Femínískt heimilislíf

10.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Femínískt heimilislíf

„Patriarchy requires violence or the subliminal threat of violence in order to maintain itself … the most dangerous situation for a woman is not an unknown man in the street, or even an enemy in wartime, but a husband or lover in the isolation of their own home“ Gloria Steinem, forréttindafemínisti og blaðakona.

Continue reading...

„Ótrúlega karlkyns“

9.1.2010

Slökkt á athugasemdum við „Ótrúlega karlkyns“

Það fjölgar í hópi þeirra kvenna sem leyfa sér að segja að Hrunið hafi verið körlum að kenna og konur hafi bara staðið hlutlausar hjá og furðað sig á þessum strákabjánum – sligaðar af kvenlegri áhættumeðvitund. Þannig birtir dv.is þann 4. jan. sl. frétt sem ber titilinn „Karladrifin og strákaleg útrás“. Þar segir af fræknum árangri Sigrúnar Davíðsdóttur, fréttaritara […]

Continue reading...

„Konur eru veikari en karlar“

7.1.2010

Slökkt á athugasemdum við „Konur eru veikari en karlar“

Svona hljóðar fyrirsögn greinar á Doctor.is sem ég rakst nýlega á í tengslum við gagnaöflun um fjölda kvenna og karla sem leita sér áfengis- og vímuefnameðferðar. Eins og allir vita er forréttindafemínistum mikið í mun að litið sé á konur sem einhverskonar kjánaprik sem ferst afar fátt vel úr hendi. Það er akkúrat það andrúmsloft sem ég […]

Continue reading...

Völd

2.1.2010

Slökkt á athugasemdum við Völd

Ein af furðum veraldar er forréttindafemínismi … og ein af furðum forréttindafemínisma er skilgreining hreyfingarinnar á valdi – sem er raunar hornsteinn femínínskrar hugmyndafræði. Tilvist forréttindafemínísma á allt sitt undir því að vald sé skilgreint frá sjónarhóli kvenna svo og því að allt vald liggji hjá körlum en ekkert hjá konum. Í framhaldi af því […]

Continue reading...

Bannað að barna á vígvellinum

28.12.2009

Slökkt á athugasemdum við Bannað að barna á vígvellinum

Vísir.is birtir frétt þess efnis að Anthony Cucolo ,hershöfðingi í Norður Írak, hafi hótað að leiða liðsmenn sína fyrir herrétt ef þeir verði ófrískir á meðan þeir gegna herþjónustu þar í landi en fjölmargar konur eru sagðar í bandaríska hernum. Án þess að hafa séð það enn þá sé ég í hendi mér hvernig forréttindafemínistar […]

Continue reading...

Femínísk jólakveðja

22.12.2009

Slökkt á athugasemdum við Femínísk jólakveðja

Forréttindafemínistar virðast upp til hópa vera voðalega fúlt fólk – alltaf í vondu skapi, meira að segja þegar þeir eru að ná árangri í baráttumálum sínum segja þær að þetta sé hvergi nærri nóg og halda áfram að vera frekar fúlar. Einhver kynni að spyrja sig; ætli forréttindafemínistar fari í jólaskap? Júbb, þær fara í […]

Continue reading...

Dýr skilnaður Tiger

20.12.2009

Slökkt á athugasemdum við Dýr skilnaður Tiger

Á vef mbl.is er nú greint frá því að eiginkona kylfingsins Tiger Woods eigi nú í viðræðum við skilnaðarlögfræðinga sem hafa sérhæft sig í málum fólks sem eiga miklar eignir. Í fréttinni kemur fram að hjónaleysin hafi upphaflega búið í Kaliforníu þar sem jafnan er gengið út frá því að eignir skiptist til helminga við […]

Continue reading...

Femínistar fagna merkum áfangasigri

18.12.2009

Slökkt á athugasemdum við Femínistar fagna merkum áfangasigri

Vísir.is birtir nú frétt þess efnis að Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hafi samþykkt að Skúlagata breyti um nafn og heiti eftirleiðis Bríetartún eftir Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, fyrsta kvenborgarfulltrúa Reykjavíkur. Ef fjöldi pósta á póstlista Femínistafélags íslands gefur einhverja vísbendingu um vægi málefna er ljóst að hér er á ferðinni mjög mikilvægt málefni.

Continue reading...

Konur óskast

7.12.2009

Slökkt á athugasemdum við Konur óskast

Eins og allir vita sem eru læsir og hafa heyrn þá er eitt helsta hugðarefni forréttindafemínista það að allstaðar sem fólk kemur saman skuli helmingur vera konur. Þetta var a.m.k. ofarlega á baugi hjá forréttindafemínistanum sem sendi skeyti inn á póstlista Femínistafélagsins og bað um konu til að halda ræðu á yfirstandandi kröfufundum byltingarinnar á Austurvelli.

Continue reading...